17.6.2013 | 00:09
'oli stef og ég :)
Fátt er nú annað en gott að frétta héðan úr Firðinum fagra . Veðrið leikur við okkur og sprettan er ljómandi. Nú í kvöld sat ég og skemmti mér yfir handboltaleik Ísland Rúmenía. Mér var reyndar lítið skemmt yfir fyrri hálfleiknum en sá seinni var alveg frábær . Að leiknum loknum var snillingurinn Ólafur Stefánsson heiðraður og þakkað fyrir sinn frábæra feril þar sem þetta var hans síðasti landsleikur hvorki meira né minna en sá 330. Óla þekki ég nú ekki nema í gegnum sjónvarpið, en þau skilaboð sem ég fæ þaðan eða öllu heldur upplifun, segja mér að þarna sé auðvitað fyrir það fyrsta handboltasnillingur, vitur maður og hvers manns hugljúfi, drengur góður og jafnvel jaðri við að vera heilmikill heimspekingur í honum. Mikið var mér því skemmt þegar þessi draumur tók við afreksmerki ÍSÍ. Og ekki bara einhverju afreksmerki, heldur því fyrsta sem afhent er í sögunni.
Hann stóð þarna eins og hann er bara, klóraði sér í eyranu og þurrkaði af sér svitann, tók við merkinu stóreygur og opinmynntur og sagði svo þessa snilldarsetningu að líklega yrði hann búinn að týna merkinu eftir viku og að menn skyldu frekar rita nöfn sín í hjörtu mannanna frekar en að meitla þau í marmara.
Agalega fannst mér þetta fyndið ég gæti næstum trúað að þá hafi langað til að taka af honum þessa stórmerkilegu viðurkenningu aftur úr því að hann kynni ekki að meta hana betur en þetta
.
Svo verð ég að láta þetta fljóta með
Óli sagði víst einhvern tímann : Ef að maður deyr í leik, þá deyr maður þó að minnsta kosti lifandi
Allir segja að hann sé vitur maður
Ég sagði einu sinni um rollu sem hafði drepist að hún hefði verið lifandi bara rétt áður en hún dó
Um það segja nú flestir að ég sé hálfviti
Getið þið kannski sagt mér í hverju munurinn liggur???? Það er jú allt held ég lifandi þegar það deyr er það ekki annars??
Eigiði nú yndislega daga
kveðja Hvalshöfðakjellingin
Um bloggið
Hafdís Brynja Þorsteinsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.